E.coli baktería greindist í neysluvatni

Höfn í Hornafirði.
Höfn í Hornafirði. mbl.is/Golli

E.coli baktería greindist í neysluvatni í Nesjum og á Höfn í Hornafirði.

Til að gæta fyllsta öryggis eru íbúar beðnir um að sjóða allt neysluvatn.

Sveitarfélagið Hornafjörður greinir frá þessu í færslu á Facebook.

„Heilbrigðiseftirlit Austurlands mun taka fleiri sýni til greiningar strax eftir helgi og mun veita frekari upplýsingar um stöðu mála um leið að þær liggja fyrir,“ segir í færslunni.

⚠E-coli baktería í neysluvatni ⚠ Sveitarfélagið hefur fengið tilkynningu um að E-Coli baktería hafi greinst í...

Posted by Sveitarfélagið Hornafjörður on Laugardagur, 18. janúar 2025
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka