Hringvegurinn settur á óvissustig

Slæm veðurspá er í Öræfasveit.
Slæm veðurspá er í Öræfasveit. mbl.is/Rax

Þjóðvegur 1 á milli Skaftafells að vestan og Hnappavalla að austan verður settur á óvissustig klukkan 8 í fyrramálið.

Er það vegna slæmrar veðurspár í Öræfasveit á morgun, að því er segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Segir þar að líklega þurfi að grípa til lokana með stuttum fyrirvara.

Fyrsta gula viðvörun Veðurstofunnar þessa helgina tók í gildi klukkan 3 í nótt og fellur svo síðasta í gildi klukkan 22 á mánudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka