Lögregla veitti ökumanni eftirför í miðbænum

Lögreglan er alltaf á vaktinni.
Lögreglan er alltaf á vaktinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögregla veitti ökumanni bifreiðar eftirför í miðbæ Reykjavíkur. Þegar ökumaðurinn var króaður af reyndi hann að hlaupa í burtu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem greint er frá verkefnum lögreglu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. 

„Lögregla hafði afskipti af ökumanni bifreiðar en við afskiptin reyndi ökumaður að komast undan lögreglu á bifreiðinni. Eftir eftirför um miðbæ Reykjavíkur var ökumaður bifreiðarinnar króaður af og reyndi hann þá að hlaupa frá bifreiðinni og lögreglu en hafði ekki erindi sem erfiði,“ segir í dagbókinni.

Þá kemur fram að farþegi bifreiðarinnar hafi einnig reynt að hlaupa undan lögreglu.

Ökumaðurinn og farþeginn voru báðir vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins, en þeir reyndust vera undir áhrifum áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert