Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu sem tekur gildi klukkan tólf á hádegi. Þá taka rýmingar gildi á íbúðarsvæði og atvinnuhúsnæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði frá klukkan 18 í dag.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að spáð sé norðaustan hvassvirði á Austfjörðum með mikilli snjókomu í kvöld og á morgun. Þar segir að uppsöfnuð getur orðið hátt í 300 mm til fjalla og bætist skafrenningur ofan á það. Geri megi ráð fyrir að nokkrir metrar af snjó geti bæst við til fjalla.
„Nokkur snjóflóð féllu á Austfjörðum í gær og athuganir snjóeftirlitsmanna benda til þess að stöðugleiki snjóþekjunnar sem fyrir var sé ekki mikil. Búist er við að snjóflóðahætta aukist talsvert þegar líður á veðrið og hefur verið ákveðið að rýma nokkra reiti á Seyðisfirði og í Neskaupstað, bæði atvinnusvæði og íbúðahús, frá kl. 18,“ segir ennfremur í tilkynningunni.
Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður aðfaranótt þriðjudags. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist vel með aðstæðum og verður gripið til frekari rýmingar ef þess þykir þörf.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi og Austfjörðum eftir hádegi vegna hvassviðris og mikillar snjókomu.
Fréttin hefur verið uppfærð.