Aðgerðir þýði mögulega tilflutning á fjármagni

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Karítas

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir vænt­ing­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar af bréfi því sem sent hef­ur verið á for­stjóra rík­is­stofn­ana um hagræðing­ar­til­lög­ur og fleira séu fyrst og fremst að fá all­ar hug­mynd­ir upp á borðið fyr­ir fram­an bæði rík­is­stjórn og hagræðing­ar­hóp­inn sem sett­ur hef­ur verið á lagg­irn­ar.

Í sam­tali við mbl.is seg­ir hún enn frem­ur að það verði ekki þannig í rík­is­stjórn­inni að hvert og eitt fagráðuneyti sé sér á báti.

Þarf heild­ræna sýn

Oft hef­ur verið talað um að þegar for­stjór­ar sýni aðhald og nái niður rekstr­ar­kostnaði verði fram­lög til stofn­ana þeirra lækkuð í kjöl­farið. Er lík­legt að for­stjór­ar vilji í ljósi þess draga úr kostnaði?

„Þetta er mjög góð spurn­ing og eitt af því sem við höf­um rætt í rík­is­stjórn og mik­il­vægi þess að við séum sam­an í þessu verk­efni.

Mik­il­vægi þess að fólk sé ekki bara fast í sínu ráðuneyti og það sé raun­veru­leg­ur hvati til þess að fara í ákveðnar aðgerðir í sínu ráðuneyti þó það þýði mögu­lega til­flutn­ing á fjár­magni eitt­hvað annað,“ seg­ir Kristrún. Þess vegna þurfi heild­ræna sýn. Svo fólk sé ekki bara fast á sín­um stað.

Gul­rót­in að standa sig vel í starfi

Spurð hver gul­rót­in sé fyr­ir þá for­stjóra sem munu leggja til hagræðing­ar­hug­mynd­ir seg­ir Kristrún að gul­rót­in sé fyrst og fremst að vinna vel í þágu þjóðar. Rík­is­stjórn­in vilji að bet­ur sé gert.

„Gul­rót­in hlýt­ur bara að vera að standa sig vel í starfi.  Ég veit vel að víða eru mjög góðar hug­mynd­ir sem fólk hef­ur áhuga á að koma til skila.“

Sam­ein­ing­ar sam­ein­inga vegna ekki góðar

Um mark­mið rík­is­stjórn­ar um sam­ein­ing­ar rík­is­stofn­ana seg­ir Kristrún ým­is­legt hafa verið rætt í stjórn­ar­mynd­un­ar­viðræðunum og oft komi ým­is­legt upp. Það væri þó ekki ábyrgt af henni að varpa því fram.

Spurð hvort þegar séu uppi til­lög­ur um sam­ein­ing­ar hjá ein­staka ráðherr­um seg­ir hún ein­fald­lega að það sé eitt­hvað sem þurfi að skoða og sam­ein­ing­ar sam­ein­inga vegna séu ekki góðar. Það þurfi að vera aug­ljóst hagræði af þeim og bætt þjón­usta.

„Við kom­um inn í þessa rík­is­stjórn með það fyr­ir aug­um að vera sam­einuð og sam­stíga. Þetta er heild­rænt átak hjá okk­ur og ég held að það sé gott að við fáum all­ar þess­ar hug­mynd­ir upp á sama stað og get­um þá unnið heild­rænt úr þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert