Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur sent Donald Trump heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni vegna innsetningar hans í embætti forseta Bandaríkjanna.
Trump var kjörinn forseti í annað sinn í kosningum þann 5. nóvember 2024 og fer embættistakan fram í dag.
Eftir að Trump hafði betur í kosningunum í nóvember óskuðu Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, þáverandi utanríkisráðherra, Trump til hamingju með sigurinn. Halla beið hins vegar með heillaóskirnar og í svari frá embættinu þá kom fram að til stæði að gera það með formlegum hætti þegar Trump yrði vígður í embættið.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að í bréfinu fagni forseti farsælu stjórnmálasambandi ríkjanna um áratuga skeið og áréttar að sem stofnaðilar að Atlandshafsbandalaginu deili Ísland og Bandaríkin bæði sameiginlegum gildum og hagsmunum.
„Við Íslendingar metum mikils vináttu okkar við Bandaríkjamenn og sívaxandi gagnkvæm tengsl, meðal annars á sviði viðskipta, menntunar, menningar og ferðaþjónustu,“ segir í bréfi forseta Íslands.
Forseti vekur máls á því að Ísland njóti þeirrar gæfu að teljast friðsælasta land heims og vilji beita sínum áhrifum til góðra verka. Þá minnist forseti leiðtogafundarins í Höfða þegar Ísland varð vettvangur sögulegra viðræðna milli Ronalds Reagans og Mikaíls Gorbatsjovs í tilraun þeirra til að binda enda á kalda stríðið.
Forsetinn segir að enn sé ákall eftir friði í heiminum og nú sem fyrr þurfi til þess alþjóðlega skuldbindingu. Sjálf sé hún ævinlega reiðubúin að styðja við einlæga viðleitni til að stuðla að friði og réttlæti.