„Klárlega bara fyrir stærri bíla og vana bílstjóra“

Vegurinn inn að Básum á Þórsmerkursvæðinu er farinn í sundur.
Vegurinn inn að Básum á Þórsmerkursvæðinu er farinn í sundur. Ljósmynd/Aðsend

Vegurinn inn að Básum á Goðalandi á Þórsmerkursvæðinu er farinn í sundur eftir að Krossá ruddi sér leið yfir varnargarð.

Þetta staðfestir Guðmundur Fannar Markússon, staðarhaldari í Básum, í samtali við mbl.is.

Krossá hefur rutt sér leið í gegnum varnargarð sem ætlað var að halda ánni frá Básum og stýra farvegi hennar frá veginum sem liggur inn að Básum. Við það komst áin að veginum og skar hann í sundur á kafla nærri Básum.

„Þetta er klárlega bara fyrir stærri bíla og vana bílstjóra núna,“ segir Guðmundur um stöðu vegarins í dag og bætir við að þar eigi hann við vel breytta bíla.

Hann segir að ef fólk eigi erindi inn í Bása sé öruggast að fara „gamla veginn“ við Álfakirkju, fyrir þá sem þekkja svæðið vel.

Þá bendir hann á að um sé að ræða svæði sem fullt er af jökulám. Þær stjórnist af þíðu og frosti og því sé umræddur vegur gjarn á breytingar og hann sé „alltaf alls konar“.

Krossá hefur rutt varnargörðunum á svæðinu frá og tekið veginn …
Krossá hefur rutt varnargörðunum á svæðinu frá og tekið veginn í sundur. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert