Hákon Stefánsson, stjórnarformaður Sýnar hf. segir breytingar vera órjúfanlegan hluta af vegferð félagsins og kalla þær bæði á skýrleika og úthald. Segir hann jafnframt að með öflugum starfsmannahópi og markvissum breytingum á rekstri félagsins sé stefnt að því að styrkja það sem leiðandi afl á markaði sem og að hámarka langtímavirði þess.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Hákonar á Vísi.
Athygli hefur vakið að fjórir háttsettir starfsmenn félagsins hafa sagt upp störfum það sem af er ári.
„Undanfarið hefur verið unnið að víðtækri stefnumótun félagsins með þátttöku mikils fjölda starfsmanna sem hafa lagt fram dýrmæta reynslu og innsýn til að móta framtíðarsýn félagsins. Á sama tíma hefur stjórn Sýnar tekið ákvörðun um að fleiri einingar verði ekki seldar út úr rekstrinum heldur þvert á móti styrktar. Stefnan byggir á metnaði og skýrri sýn starfsfólks Sýnar og hefur það markmið að efla félagið enn frekar og tryggja stöðugan og sjálfbæran rekstur,“ segir í grein stjórnarformannsins.
Þá séu breytingar órjúfanlegur hluti af vegferðinni sem kalli á bæði skýrleika og úthald. Segir Hákon að í ferlinu hafi verið lögð áhersla á vandaða framkvæmd og opin samskipti þar sem upplýsingar eru veittar reglulega til að tryggja traust og samstöðu innan fyrirtækisins.
„Stjórn Sýnar stendur einhuga að baki stjórnendum og starfsfólki í þessari vinnu. Með sameiginlegu átaki er stefnan skýr: að styrkja stöðu Sýnar sem forystuafls á fjölmiðla- og fjarskiptamarkaði og skapa traustan grunn fyrir framtíðina.“
Segir Hákon Sýn vera sterkt og lifandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar í heimi hraðra breytinga og nýrra áskorana.
„Við eigum og rekum nokkur af þekktustu vörumerkjum landsins og erum afar stolt af þeirri leiðandi stöðu sem við höfum byggt okkur.
Með öflugum starfsmannahópi og markvissum breytingum á rekstri félagsins stefnum við að því að styrkja það sem leiðandi afl á markaði og hámarka langtímavirði þess.“