Sjö með þriðja vinning í EuroJackpot

Miðahafarnir fá tæpar 16 milljónir í vinning hver fyrir sig.
Miðahafarnir fá tæpar 16 milljónir í vinning hver fyrir sig. mbl.is/Karítas

Einn heppinn miðahafi í EuroJackpot vann rúmlega 197 milljónir króna í öðrum vinningi kvöldsins. Miðinn var keyptur í Þýskalandi. 

Fyrsti vinningurinn í EuroJackpot gekk ekki út í útdrætti kvöldsins en sjö miðahafar voru með þriðja vinning og fær hver þeirra rúmar 15,9 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Finnlandi, Póllandi, Slóveníu og Þýskalandi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá íslenskri getspá. 

Enginn fékk fyrsta vinning í Jókernum í kvöld en þrír miðahafar voru með annan vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur. 

Miðarnir voru keyptir á vef lotto.is og í áskrift. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert