Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði

Karlmaður, sem veittist að fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði með …
Karlmaður, sem veittist að fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði með rúllubaggateini í október, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi. Þá hefur hann verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. febrúar. mbl.is/Jón Sigurðsson

Karl­maður sem réðst á fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sína og barn­s­móður á Vopnafirði í októ­ber hef­ur verið ákærður fyr­ir til­raun til mann­dráps og stór­fellt brot í nánu sam­bandi. Maður­inn hef­ur verið úr­sk­urðaður í áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald til 4. fe­brú­ar en Lands­rétt­ur hef­ur staðfest gæslu­v­arðhalds­úrsk­urð Héraðsdóms Reykja­vík­ur þar um.

Er mann­in­um gefið að sök að hafa meðal ann­ars veist að kon­unni með rúllu­bagga­teini og notað hann til að reyna að stinga hana í kviðinn, ýta við henni þar til hún féll til jarðar og síðan notað tein­inn til að þrengja að hálsi henn­ar.

Upp­fyll­ir ekki skil­yrði sjúkra­hús­vist­un­ar

Maður­inn skaut gæslu­v­arðhalds­úrsk­urði héraðsdóms frá 7. janú­ar til Lands­rétt­ar á þeim grund­velli að úr­sk­urðinum yrði breytt á þann veg að maður­inn yrði vistaður á sjúkra­húsi eða viðeig­andi stofn­un í stað þess að sæta gæslu­v­arðhaldi.

Lands­rétt­ur staðfesti sem seg­ir úr­sk­urð héraðsdóms og vísaði til þess að mat meðferðarlækn­is liggi fyr­ir um að maður­inn þurfi ekki leng­ur á sjúkra­hús­vist að halda en hann var vistaður á sjúkra­húsi frá 19. októ­ber, þegar hann var úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald vegna máls­ins, og til 13. nóv­em­ber á síðasta ári. Síðan þá hef­ur hann sætt gæslu­v­arðhaldi í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Auk þess vís­ar Lands­rétt­ur til bréfs frá Fang­els­is­mála­stofn­un þar sem fram kem­ur að maður­inn sé lík­am­lega og and­lega bær að sæta gæslu­v­arðhaldi. Í svari stofn­un­ar­inn­ar seg­ir að fang­ar eigi rétt á heil­brigðisþjón­ustu í fang­elsi, hvort sem þeir sæti gæslu­v­arðhaldi eða afpláni refsi­dóm. Stofn­un­in fái upp­lýs­ing­ar um það ef heil­brigðis­starfs­fólk telji að fang­ar séu það veik­ir að þeir geti ekki dvalið í fang­elsi. Eng­ar slík­ar upp­lýs­ing­ar hafi borist um mann­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert