Bjartsýni á það að samningar náist í kjaradeilum kennara, ríkis og sveitarfélaga fyrir mánaðamót hefur minnkað á síðustu dögum. Mögulegt allsherjarverkfall kennara hefði þung áhrif á sveitarfélög landsins.
Þetta segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, í samtali við mbl.is.
Ef samningar nást ekki fyrir 1. febrúar hefjast verkfallsaðgerðir á ný og kennarar í 14 leikskólum og sjö grunnskólum leggja niður störf. Þá hefur Félag framhaldsskólakennara gefið út að farið verði í atkvæðagreiðslu um ótímabundin verkföll í nokkrum framhaldsskólum, eftir að friðarskyldu lýkur um mánaðamótin.
Ertu bjartsýn á að samningar náist fyrir mánaðamót?
„Nei, mér heyrist tónninn vera annar,“ segir Heiða en bætir við að hún sé hóflega bjartsýn.
„Meðan fólk talar saman er alltaf von og þá er maður alltaf með bjartsýnina að leiðarljósi. En ég er hóflega bjartsýn á það að það takist. Það má segja að bjartsýni mín hefur minnkað síðustu daga.“
Deiluaðilar funduðu stíft í Karphúsinu í dag og að fundi loknum sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is að annar fundur yrði ekki boðaður að svo stöddu.
„Það hefur verið þrautreynt að kanna hvort að hægt sé að finna einhvern grundvöll sem aðilarnir gætu notað til að lenda þessari deilu og það hefur ekki tekist ennþá,“ sagði Ástráður.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, ræddi við Ríkisútvarpið um hádegisbil þar sem hann sagðist aðspurður ekki útiloka allsherjarverkfall hjá öllum kennarafélögum.
„Ég virði auðvitað baráttu kennara fyrir sínum launum og kjörum. Okkur finnst við hafa gengið langt í að bjóða þeim sáttahönd þannig við munum vinna áfram að sátt í bili,” segir Heiða Björg.
Hefði allsherjarverkfall þung áhrif á sveitarfélögin?
„Það hefur auðvitað þung áhrif á sveitarfélögin að því leyti að þetta er eitt af stærstu verkefnum sveitarfélaga, að ala upp börn og mennta þau. Líf fólks sem treystir á þá menntun og oft viðveru – sérstaklega lítill barna – fer auðvitað úr skorðum.“
Hún segir sveitarfélögin hafa verið í þessum viðræðum af heilum hug og hún segir skipta máli að kennarar séu sáttir með sín kjör og starfsaðstæður.