„Þetta snýr fyrst og fremst að Reykjavíkurborg og húseigandanum. Það virðist hafa verið rangt staðið að útgáfu leyfisins, þannig mér sýnist að þetta fari bara annan hring í borginni og að þessar framkvæmdir frestist. Þannig lítur þetta út fyrir mér eins og er.”
Þetta segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við mbl.is.
Vinnumálastofnun og framkvæmdasýsla ríkisins funduðu í dag um ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að fella úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa borgarinnar um að breyta JL-húsinu við Hringbraut í búsetuúrræði fyrir hælisleitendur.
Í nóvember í fyrra samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar tillögu þess efnis að breyta húsnæðinu í búsetuúrræði en nágranni kærði niðurstöðuna á þeirri forsendu að ekki væri heimild fyrir sértæku búsetuúrræði á lóðinni. Einungis væri heimilt að hýsa matvöruverslun og þjónustu.
Til stóð að fjórar hæðir hússins færu undir búsetuúrræðið en í heild var heimild fyrir 400 einstaklinga í húsinu. Reykjavíkurborg hafði þegar gefið út að áætlaður fjöldi hælisleitenda sem myndi gista í húsinu færi ekki yfir 326 manns.
Þegar höfðu 60 konur sem komu einar til landsins flutt inn í húsnæðið. Hafa því efstu tvær hæðir hússins þegar verið teknar í notkun.
Aðspurð segist Unnur vonast til þess að þær konur sem hafi verið fluttar inn í húsið fái að vera þar meðan málið er enn í ferli. Hún segir næstu skref vera í höndum húseigandans sem þurfi að afla tilskilinna leyfa og senda inn nýja umsókn til borgaryfirvalda.
Framkvæmdasýslan mun funda með húseigendum á næstu dögum.