Segir ekkert um samtöl við Dag

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinna.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinna. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Hákon

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra og formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ir að Degi B. Eggerts­syni sé ætlað hlut­verk inn­an þing­flokks­ins líkt og öðrum þing­mönn­um, það komi bet­ur í ljós þegar þing kem­ur sam­an. Hins veg­ar vill hún hvorki neita því né játa að hafa rætt það við Dag að hann yrði þing­flokks­formaður.

Staða Dags B. Eggerts­son­ar inn­an Sam­fylk­ing­ar­inn­ar var tölu­vert rædd í aðdrag­anda kosn­inga. Þá birti kjós­andi í Grafar­vogi, sem ekki hugnaðist að fv. borg­ar­stjóri væri á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, svar frá Kristúnu. Þar sagði hún að Dag­ur væri ekki ráðherra­efni og í raun „auka­leik­ari“ á list­an­um, en ef það sefaði ekki áhyggj­ur kjós­and­ans gæti hann auðveld­lega strikað hann út í kjör­klef­an­um.

Að kosn­ing­um lokn­um kom það Degi hins veg­ar í opna skjöldu að verða ekki þing­flokks­formaður, en hann lét hafa eft­ir sér að hann hefði gert ráð fyr­ir því.

Um­fjöll­un­ina má nálg­ast í heild sinni í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert