Útlit fyrir talsverða snjókomu

Úrkomuspáin á landinu kl. 16 í dag.
Úrkomuspáin á landinu kl. 16 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Síðdegis og í kvöld er útlit fyrir talsverða snjókomu, en í hægum vind sunnan- og suðvestanlands, einkum í uppsveitum Suðurlands, í Mýrdal og þaðan austur fyrir Kirkjubæjarklaustur. Allt að 20 til 30 sentimetrum á nokkrum klukkustundum, að því er segir í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. 

Fram kemur á vef Veðurstofu Íslands að það sé spáð suðaustan og austan 10-18 m/s í dag.

Þá er spáð rigningu eða slyddu með köflum á sunnanverðu landinu, en þar lægir seinnipartinn með talsverðri snjókomu. Hiti verður 0 til 6 stig. Yfirleitt verður þurrt norðan til og hlýnar smám saman upp fyrir frostmark.

Snýst í norðaustan 5-13 á austurhelmingi landsins á morgun og snjókoma eða slydda verður af og til. Hægari vindur verður vestan til og yfirleitt þurrt fram á kvöld. Hiti verður í kringum frostmark.

Veðurvefur mbl.is

Vindaspáin kl. 15 í dag.
Vindaspáin kl. 15 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert