Engar lokanir í leikskólum Kópavogs

Börn í Kópavogi hafa ekki þurft að sæta lokunum á …
Börn í Kópavogi hafa ekki þurft að sæta lokunum á leikskólum sínum. Ljósmynd/Colourbox

Ekki hef­ur þurft að loka deild­um í leik­skól­um Kópa­vogs­bæj­ar allt frá inn­leiðingu Kópa­vogs­mód­els­ins svo­kallaða, haustið 2023.

Í Kópa­vogs­mód­el­inu felst meðal ann­ars að leik­skóla­vist er gjald­frjáls sex klukku­tíma á dag, auk­inn sveigj­an­leiki í skrán­ingu dval­ar­stunda og tekju­teng­ing af­slátta af leik­skóla­gjöld­um. Með Kópa­vogs­mód­el­inu var stefnt að því að auka stöðug­leika og styrkja starfs­um­hverfi leik­skóla Kópa­vogs.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Kópa­vogs­bæ. 

Breyt­ing­arn­ar hafa leitt til þess að dval­ar­tími barna í leik­skól­um Kópa­vogs hef­ur styst veru­lega. Leik­skóla­börn dvelja núna að meðaltali í 7,3 tíma á dag í leik­skól­um í stað 8,1 tíma. Rúm fjöru­tíu pró­sent barna dvelja núna í leik­skól­um í átta tíma eða leng­ur en hlut­fallið var rúm­lega tvö­falt hærra fyr­ir breyt­ing­ar. Þetta hef­ur leitt til þess að flest­ir leik­skól­ar Kópa­vogs eru full­mannaðir og eng­ar deild­ir hafa þurft að loka.

Þjón­ust­an batnað til muna

Ásdís Kristjáns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs, seg­ir að mark­miðið með breyt­ing­un­um hafi meðal ann­ars verið að draga úr mönn­un­ar­vanda sem hafi lengi verið viðvar­andi í leik­skól­um Kópa­vogs, hún seg­ir að breyt­ing­arn­ar séu ástæða þess að ekki hafi þurft að loka leik­skól­um sök­um mann­eklu og að fleiri börn fái nú leik­skóla­pláss en áður. 

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Ásdís Kristjáns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs. mbl.is/​Sig­urður Bogi

„Staðan í Kópa­vogi fyr­ir breyt­ing­ar var víða sú sama og hjá þeim sveit­ar­fé­lög­um sem hafa ekki gripið til aðgerða og þurfa því oft að grípa til fáliðun­ar­áætl­ana og lok­ana. Það er ljóst að sama staða væri uppi hjá okk­ur ef við hefðum ekki inn­leitt Kópa­vogs­mód­elið,“ er haft eft­ir Ásdísi á vef Kópa­vogs. 

Frá inn­leiðingu breyt­ing­anna hafa tví­veg­is verið lagðar kann­an­ir fyr­ir for­eldra og for­sjáraðila sem og starfs­fólk. Niður­stöður sýna meðal ann­ars fram á það að tekju­lægsti hóp­ur­inn er al­mennt ánægðari en aðrir tekju­hóp­ar með breyt­ing­arn­ar. Fleiri eru ánægðir en óánægðir og flest­ir upp­lifa auk­inn stöðug­leika. Starfs­fólk er al­mennt mjög ánægt með breyt­ing­arn­ar og auk­inn áhugi hef­ur mynd­ast fyr­ir því að starfa í leik­skól­um í Kópa­vogi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert