Rannsaka hrottalega líkamsárás tálbeituhóps

Rannsókn málsins er sögð á lokametrunum.
Rannsókn málsins er sögð á lokametrunum. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Vesturlandi er með til rannsóknar hrottalega líkamsárás þar sem nokkur ungmenni gengu í skrokk á meintum barnaníðingi sem þau leiddu í gildru með tálbeituaðferð. 

Samkvæmt heimildum mbl.is lá maðurinn þungt haldinn á sjúkrahúsi um tíma eftir árásina.

Árásin átti sér stað á Akranesi þann 20. desember síðastliðinn og einhverjar handtökur hafa átt sér stað vegna málsins. Þetta staðfestir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við mbl.is.

„Rannsóknardeildin hjá mér er með þetta mál til rannsóknar og það er verið að handtaka aðila sem stóðu að þessu,“ segir Ásmundur. Rannsóknin er sögð á lokametrunum.

Lögreglan með myndband af árásinni

Myndband af árásinni er eitt þeirra sem gengið hefur gengið manna á milli á samfélagsmiðlum upp á síðkastið, en Nútíminn greindi í síðustu viku frá því að hópur ungmenna stundaði þá iðju að leiða meinta barnaníðinga í gildru með tálbeituaðferð, í þeim tilgangi að ganga í skrokk á þeim.

Mennirnir eru sagðir hafa reynt að setja sig í samband við börn í gegnum samfélagsmiðla og ungmennin segjast hafa fengið þá til að mæta á ákveðna staði undir því yfirskini að þeir væru að hitta börn. Í kjölfarið hafi verið ráðist á þá og það tekið upp á myndband.

„Ég veit að myndband af þessu atviki fór í dreifingu og við erum með það í rannsóknardeildinni, við erum með upptökur af þessu. Þannig það liggur alveg fyrir hvað var gert þarna. Síðan erum við bara að finna út hverjir gerðu það,“ segir Ásmundur.

Fer væntanlega í ákæruferli

„Síðan fer þetta til saksóknara hjá okkur, þeir meta framhaldið og svo fer þetta væntanlega í ákæruferli,“ bætir hann við.

Þó verknaðurinn liggi fyrir þurfi að rannsaka allt í tengslum við málið, meðal annars hvernig árásin kom til.

Spurður hvort einhver gögn bendi til þess að sá sem ráðist var á hafi brotið gegn börnum eða sé grunaður um það, segist hann ekki geta tjáð sig um það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert