Áslaug Arna boðar til fundar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur boðað til fundar í Sjálfstæðissalnum við …
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur boðað til fundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur boðað til fundar kl. 13 á morgun, sunnudag, í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll (gamla NASA-salnum). 

Áslaug auglýsir fundinn í Morgunblaðinu í dag.

Tilgreinir hún ekki tilefni fundarins í auglýsingunni en Áslaug hefur verið nefnd á meðal þeirra sem þykja líklegir til að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. 

Bjarni Benediktsson sagði 6. janúar að hann hygðist ekki bjóða sig fram til formennsku flokksins að nýju. Verður því kosið um nýja forystu flokksins á landsfundi sem fer fram 28. fe­brú­ar til 2. mars.

Auglýsing Áslaugar í Morgunblaðinu í dag.
Auglýsing Áslaugar í Morgunblaðinu í dag. Skjáskot/Morgunblaðið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert