Bolt-hjólin ekki á götunum um sinn

Í yfirlýsingu Bolt segir að öryggi sé ofar öllu og …
Í yfirlýsingu Bolt segir að öryggi sé ofar öllu og vegna veðurskilyrða og slælegs akstursöryggis hafi fyrirtækið tímabundið stöðvað leigu rafhlaupahjóla í Reykjavík. mbl.is/Egill

Bolt-rafhlaupahjólin verða ekki á götunum um sinn. Ef leitað er að hjóli í Bolt-appinu kemur fram að þjónustan sé ekki enn í boði á Íslandi, þrátt fyrir að fyrirtækið hafi komið inn á rafskútumarkaðinn síðasta sumar.

Bolt er stærsta raf­skútu­leig­a Evr­ópu en í Reykja­vík voru 800 raf­skút­ur í flot­an­um.

Öryggi ofar öllu

Bolt svaraði skriflegri fyrirspurn mbl.is með stuttri yfirlýsingu frá Martin Tansøy rekstrarstjóra. Þar segir Tansøy öryggi vera ofar öllu hjá Bolt og vegna veðurskilyrða og slælegs akstursöryggis hafi fyrirtækið tímabundið stöðvað leigu rafhlaupahjóla í Reykjavík. 

Sú fyrirbyggjandi aðgerð eigi að tryggja öryggi notenda Bolt, gangandi vegfarenda og annarra vegfarenda er haft eftir Tansøy í yfirlýsingunni, þar sem jafnframt kemur fram að þjónusta Bolt muni hefjast á ný þegar vegir verða greiðir og öruggir til aksturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert