„Forsætisráðherra Danmerkur boðaði til þessa óformlega fundar í Kaupmannahöfn með skömmum fyrirvara þar sem nokkrir leiðtogar Norðurlanda voru á leið til minningarathafnar í Auschwitz. Utanríkisráðherra verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á minningarathöfninni. Forsætisráðherra var látinn vita af fundinum.“
Þetta segir í skriflegu svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is, í kjölfar fundar sem Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana boðaði til í skyndi í gær.
Fundinn sóttu leiðtogar Finnlands, Svíþjóðar og Noregs en enginn var þar fulltrúi Íslands.
Fram kemur í svari ráðuneytisins að til fundarins hafi verið boðað með of skömmum fyrirvara til að forsætisráðherra gæti mætt.
„En hún var þó upplýst samdægurs um að fundurinn yrði haldinn og upplýst um efni fundarins,“ segir í svarinu.
Spurt var hvort Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefði fengið boð um að sitja þennan óformlega fund, sem Mette hélt með forsætisráðherrum Noregs og Svíþjóðar auk forseta Finnlands.
„Þar var fjallað um öryggismál í Eystrasalti og í Úkraínu eins og fram hefur komið á samfélagsmiðlum og hefur forsætisráðherra verið upplýstur um efni fundarins. Í síðustu viku átti ráðherra símafund með forsætisráðherrum Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar og forseta Finnlands um öryggis- og varnarmál,“ segir í svari ráðuneytisins.