„Mér finnst þessi frétt vera með ólíkindum, ef hún er sönn. Ef Inga [Sæland] er orðin ráðherra á þessum tíma þá er þetta mikil misbeiting á ráðherravaldi, sem ég myndi segja að væri mjög alvarlegt.“
Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrv. dómsmálaráðherra, í samtali við Morgunblaðið um meint efnistök samtals Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, við skólameistara Borgarholtsskóla, Ársæl Guðmundsson.
Inga hringdi fyrir þremur vikum í Ársæl vegna þess að skópar í eigu barnabarns hennar hafði týnst. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur skólameistarinn sagt við fjölda fólks að Inga hafi minnst á ítök sín innan lögreglunnar og stöðu sína í samfélaginu.
Þess ber að geta að í handbók um siðareglur ráðherra segir meðal annars: „Ráðherra notfærir sér ekki stöðu sína í eiginhagsmunaskyni eða í þágu hagsmuna tengdra aðila.“
Spurð hvort henni hefði dottið það í hug að heyra í embættismönnum í persónulegum tilgangi og minna á vald sitt sem dómsmálaráðherra segir Guðrún: „Nei, aldrei nokkurn tímann.“
Hún ítrekar að ef satt reynist sé þetta með ólíkindum. Nefnir hún að skóparið hafi í þokkabót fundist við eðlilegar kringumstæður og bætir svo við: „Það er nú oft betra heima setið en af stað farið.“
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrv. dómsmálaráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið að ef rétt reynist þurfi ekki sérstakar siðareglur til að átta sig á því að ráðherra eigi ekki að nota stöðu sína í eiginhagsmunaskyni.
Sigríður bendir á að skólameistarinn hafi kost á því að beina erindi til forsætisráðherra ef hann telji að einhverjar siðareglur hafi verið brotnar.
„Það þarf í sjálfu sér engar siðareglur til þess að það megi ganga út frá því að ráðherra beiti ekki valdi sínu eða stöðu sinni í eiginhagsmunaskyni,“ segir Sigríður.
Ársæll skólameistari kveðst bundinn trúnaði um samtalið.
„Sem skólameistari skólans og með her skjólstæðinga og forráðamenn á þeirra snærum, sem hringja um eitt og annað, get ég ekki farið efnislega í slík mál. Hversu furðuleg kannski sem þau geta hljómað og undarleg. Ég er með 1.300 nemendur og 150 starfsmenn.“
Hvorki náðist í Ingu Sæland né aðstoðarmenn hennar í gær í tengslum við umfjöllunina. Þá náðist heldur ekki í Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag