Farþegaflugvél Icelandair á leiðinni til Orlando þurfti að breyta um stefnu og lenda í Miami í gærkvöldi þegar í ljós koma að tollaeftirlitið í Orlando væri lokað á áætluðum lendingartíma.
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi flugfélagsins, staðfestir þetta í samtali við mbl.is en Icelandair er ekki með þjónustu á flugvellinum í Miami.
Farþegar þurftu að bjarga sér sjálfir með gistingu og koma sér frá Miami til Orlando en ferðalagið er um þrjár og hálf klukkustund með bíl.
Guðni segir að flugfélaginu þyki atkvikið afar leitt. Félagið eigi nú í samskiptum við farþega til að gera upp þau aukagjöld, þ.e. gistingu og ferðagjöld, sem gætu hafa fylgt þessu.
Upplýsingafulltrúinn útskýrir að atvikið orsakist af misvísandi upplýsingum auk tafa sem urðu á flugtaki vegna snjókomu á Keflavíkurflugvelli.
Flugfélaginu hafi í fyrstu verið tjáð að flugvélin þyrfti að lenda í síðasta lagi klukkan 23 að staðartíma í Orlando til þess að farþegar kæmust í gegnum tollinn, en síðan hafi komið í ljós skömmu fyrir lendingu að vélin þyrfti að vera komin alla leið að lendingarpallinum fyrir klukkan 23.
Þess vegna hafi verið gripið til þeirra ráðstafana að lenda frekar í Miami, sem er lengra til suðurs, þar sem tollgæslan var opin lengur. Flugvélin lenti þar um klukkan 23.20 að staðartíma.
„Það er leitt að þetta hafi gerst, og þá út af einhverjum misvísandi upplýsingum,“ segir Guðni.