Aðstoðarrektor býður sig fram til rektors

Ingibjörg lauk BS-prófi í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 1997, …
Ingibjörg lauk BS-prófi í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 1997, meistaranámi í næringarfræði frá Háskóla Íslands 1999 og doktorsprófi árið 2003. Ljósmynd/Háskóli Íslands

Ingibjörg Gunnarsdóttir, næringarfræðingur og aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands, býður sig fram í embætti rektors.

Ingibjörg er annar tveggja aðstoðarrektora við skólann en hún tilkynnir um framboðið á Facebook. Jón Atli Bene­dikts­son, nú­ver­andi rektor, hyggst ekki sækj­ast eft­ir embætt­inu áfram þegar skip­un­ar­tíma hans lýk­ur í júlí.

„Ég tel mig búa yfir ágætis reynslu til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem starfinu fylgja,“ segir hún en tekur þó fram að hún sé „fullkomlega reynslulaus“ þegar kemur að kosningabaráttu en hlakki til að takast á við óvissuna næstu vikurnar.

Ingibjörg starfaði sem prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild háskólans áður en hún tók við sem aðstoðarrektor.

Fleiri í framboði

Magnús Karl Magnús­son, pró­fess­or í lyfja- og eit­ur­efna­fræði, hefur einnig boðið sig fram til embætt­is rektors Há­skóla Íslands. 

Silja Bára Ómars­dótt­ir, pró­fess­or við stjórn­mála­fræðideild, sækist einnig eftir embættinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert