Kona sem varð fyrir árás hunds á Akureyri í síðustu viku axlarbrotnaði í átökum við hundinn. Þá náði hundurinn að bíta í sundur vöðva og sinar í handlegg konunnar.
Frá þessu greinir akureyrski miðillinn Vikublaðið sem ræddi við konuna.
Konan var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri með sjúkrabíl. Vikublaðið greinir frá því að auka læknar hefðu verið kallaðir út til að gera að sárunum á handlegg konunnar.
Konan, sem kom ekki fram undir nafni, segir í samtali við miðilinn að atvikið hafi verið eitt það skelfilegasta sem hún hefur lent í.
Að sögn konunnar var árásin mjög skyndileg. Hún hafi verið að ganga fram hjá ungum manni sem var með Rottweiler í ól þegar hann réðst á hana og beit í handlegg hennar.
„Hann er það kraftmikill og sterkur að hann rífur mig niður í götuna og heldur mér alveg fastri þannig að ég gat ekkert gert,“ er haft eftir konunni í Vikublaðinu.
Hún segist verða frá vinnu um nokkurra mánaða skeið eftir árásina.
Einnig er fjallað um árásina og rætt við konuna á vef Akureyri.net.
Lögreglan hefur óskað eftir því að þeir sem urðu vitni að árásinni gefi sig fram við lögreglu eða hafi samband í síma 444-2800.