Bjarni Þór Sigurðsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns VR í kosningum sem fram fara í mars.
Í yfirlýsingu segist Bjarni hafa verið félagi í VR í 30 ár og tekið virkan þátt í störfum félagsins frá árinu 2009, fyrst í trúnaðarráði félagsins og í stjórn frá árinu 2012.
„Tilgangur minn með framboði til formanns er að gæta hagsmuna alls félagsfólks í VR. Tryggja þarf vel launuð og góð störf, öryggi á vinnustað og að huga vel að sí- og endurmenntun til að mæta tæknivæðingu og aukinni notkun gervigreindar. Það kallar á nýja hugsun í endurmenntun launafólks,“ segir Bjarni í yfirlýsingunni.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hyggst bjóða sig fram sem áframhaldandi formaður VR en hún var varaformaður félagsins í tæp tvö ár áður en hún tók við sem formaður í byrjun desember eftir að Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn á þing fyrir Flokk fólksins.