Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir vegfarendum á að þar sem er lausamjöll, til dæmis suðvestan til, megi búast við erfiðum akstursskilyrðum í skafrenningi í fyrramálið.
Það gengur í hvassa suðaustanátt í nótt og fer að rigna á láglendi og víða verður hált á meðan snjó og klaka leysir. Til fjalla mun hins vegar snjóa og því versna akstursskilyrði enn frekar á heiðum að því er fram kemur í tilkynningu veðurfræðings.