Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í síðustu viku að Fimleikafélagi Hafnarfjarðar yrðu kynnt drög að kaupsamningi og viðauka við væntanlegt samkomulag í þessari viku um kaup á knattspyrnuhúsinu Skessunni. Málið verður tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í dag.
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku, er erindið var samþykkt, lagði Jón Ingi Hákonarson, fulltrúi Viðreisnar í Hafnarfirði, fram bókun þar sem hann sagði það ekki hlutverk bæjarsjóðs Hafnarfjarðar að bjarga lánardrottnum félagsins og greiða skuldir félagsins upp í topp án þess að aðstoða félagið við að semja við lánardrottna um verulega lækkun skulda.
Leggur hann til að bæjaryfirvöld aðstoði FH við að leita nauðasamninga við lánardrottna sína með það að markmiði að lækka skuldir félagsins um helming að minnsta kosti og skilyrða fjárhagsaðstoð bæjarins við þann gjörning.
Í samtali við mbl.is segist Jón Ingi ekki hafa upplýsingar um hvort íþróttafélaginu hafi þegar verið kynnt drögin eða hvenær það verði í vikunni ef svo er ekki. Hann segir þó málið verða tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í dag og að það verði í fyrsta skipti sem málið verði þar tekið fyrir. Málið hafi hingað til einungis verið rætt á lokuðum fundum bæjarráðs.
„Þetta er náttúrulega viðkvæmt mál og auðvitað þarf að huga að samningsstöðu og öðru en nú er bara komið að því að það þurfi að ræða þetta mál fyrir opnum tjöldum,“ segir Jón Ingi og nefnir að fólk í bænum sé orðið óþreyjufullt varðandi málið og hvað bæjarstjórn hyggist gera.
„Að ræða þetta fyrir luktum dyrum í tvö ár er alveg nógu langur tími.“
Nefnir Jón Ingi að nú þegar búið sé að gera úttekt á fjárhagsstöðu félagsins sé ýmislegt við það að athuga.
„Þegar félög eða fyrirtæki koma sér í þá stöðu að skuldirnar verða of háar er það fyrsta sem er gert er að fara í svona nauðasamninga og reynt að finna leiðir til þess að lækka skuldir og gera félagið eða fyrirtækið gjaldfært.
Fólk vill ekki tapa peningum og bankar vilja ekki tapa peningum en þegar bankar lána áhættulán getur það alltaf gerst að þeir þurfi að afskrifa eitthvað af lánum og ég held að það sé tímabært að bankar hérna á Íslandi láni af meiri ábyrgð þegar það kemur t.d. frá íþróttahreyfingunni.“
Jón Ingi segir allt of mörg íþróttafélög hafa komið sér í vandræði og að einhvern veginn sé það venjan að bæjarfélögin komi þeim til bjargar. Þess vegna láni bankar alltaf óhræddir.
„Mér finnst orðið tímabært að bankarnir taki nú eitthvað af þessu á kassann sjálfir. Mér finnst það nú vera sanngjarnara en að bæjarbúar geri það.“
Jón Ingi bendir einnig á annað sem kemur fram í bókun hans sem hann lítur á sem stórmál og er það að húsið, að sögn Jóns, hafi aldrei fengið öryggisúttekt eða lokaúttekt og hafi verið þar mörgu ábótavant þegar kemur að brunavörnum.
„Þarna eru tugir barna og unglinga að æfa og bærinn kaupir náttúrulega 70% af öllum tímum þarna.“
Segist Jón Ingi sjálfur hafa haldið að húsið væri með öll tilskilin réttindi og leyfi en að svo virðist ekki vera.
„Það er fyrir mér grafalvarlegt mál. Það er ekki enn komið með öryggisúttekt. Slökkviliðið hefur gert athugasemdir og þarna vantar teikningar og brunavarnir og eins og ég skil þá, alla vega í dag, hefur það ekki staðist öryggisúttekt.“
Eins og fyrr segir verður málið tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðar í dag og vonast Jón Ingi eftir því að fá viðbrögð frá bæði meirihlutanum í stjórninni sem og Samfylkingunni sem sé í minnihlutanum með Viðreisn.
„Ég veit að fólk hefur skoðanir og ég vona að fólk muni viðra skoðanir sínar fyrir opnum tjöldum. Ég myndi allavega gera það.“
Fulltrúi Viðreisnar telur að Hafnarfjarðarbær eigi að fara sér að engu óðslega þegar kemur að björgunaraðgerðum til handa FH í kjölfar fjárhagsóreiðu vegna byggingu og reksturs Skessunnar. Flýtir og óvönduð stjórsýsla er ein af ástæðum þess að illa fór, því getur flýtir og óvönduð stjórnsýsla ekki verið hluti lausnar á þessum vanda. Það er ekki hlutverk bæjarsjóðs Hafnarfjarðar að bjarga lánardrottnum félagsins og greiða skuldir félagsins upp í topp án þess að aðstoða félagið við að semja við lánardrottna um verulega lækkun skulda. Það er eðlilegt að lánastofnanir og lánadrottnar beri sína ábyrgð á áhættusömum lánveitingum. Því leggur fulltrúi Viðreisnar það til að bæjaryfirvöld aðstoði FH við að leita nauðasamninga við lánardrottna sína með það að markmiði að lækka skuldir félagsins um helming að minnsta kosti og skilyrða fjárhagsaðstoð bæjarins við þann gjörning. Það er ekki hlutverk bæjarsjóðs að bjarga bönkum.
Það er nauðsynlegt að íþróttafélög sem ítrekað fara fram á styrki af almannafé, sýni aga í fjármálum. Ef engar ráðstafanir verða gerðar til að tryggja viðunandi vinnubrögð við fjármálastjórn þá er viðbúið að stutt verði í næsta ákall um björgunaraðgerðir. Því er nauðsynlegt að endurskipuleggja fjármál FH í heild sinni og setja strangari skilyrði um eftirlit og reglulega upplýsingagjöf.
Nýlega sendi félagið frá sér yfirlýsingu um að eftir kaup bæjarins á knatthúsinu þá verði FH skuldlaust og eigið fé 1.5 millarður. Í ljósi þessa er full ástæða til að skoða hvort félagið geti sjálft leyst fjárhagsvanda vegna knatthússins.
Það er nauðsynlegt að þetta mál verði skoðað í stærra samhengi og bærinn ætti ekki að leggja fram fjármuni vegna þessa máls, án þess að áður verði gerð úttekt af óháðum aðila á fjármálum félagsins í heild. Lagt verði mat á stöðu félagsins í heild, fjármálastjórn, möguleika á lækkun skulda og fyrirkomulag fjármálastjórnar til framtiðar.
Ennfremur þarf að ganga frá lokaúttekt og öryggisúttekt á húsinu og svara þeirri spurningu hvernig það gat átt sér stað að húsið fór í notkun, m.a. fyrir æfingar barna, án þess að búið væri að klára úttekt á öryggismálum þ.m.t. brunavörnum.