Kjaradeila kennara, ríkis og sveitarfélaga er öll í hnút og eins staðan er í dag er ólíklegt að samningar náist fyrir mánaðamót.
Að öllu óbreyttu má því gera ráð fyrir því að verkfallsaðgerðir kennara hefjist á ný þann 1. febrúar.
Verkföll hafa verið boðuð í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Þá hefur Félag framhaldsskólakennara gefið út að farið verði í atkvæðagreiðslu um ótímabundin verkföll í nokkrum framhaldsskólum, eftir að friðarskyldu lýkur um mánaðamótin.
Ótímabundnar verkfallsaðgerðir hefjast aftur 1. febrúar á þeim fjórum leikskólum þar sem kennarar voru í verkföllum fyrir áramót:
Þá verður farið ótímabundnar aðgerðir í eftirfarandi tíu leikskólum til viðbótar:
Á sama tíma hefjast tímabundnar verkfallsaðgerðir í sjö grunnskólum.
Verkföllum í þremur grunnskólum var frestað með friðarskyldu í lok nóvember, en þær aðgerðir hefjast aftur 1. febrúar og standa til 21. febrúar. Skólarnir eru eftirtaldir:
Verkföll í eftirtöldum grunnskólum standa frá 1. febrúar til 26. febrúar: