Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, er meðal þeirra sem gefa kost á sér til embættis rektors Háskóla Íslands.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Kolbrún sendi mbl.is. Þar segir hún það afar mikilvægt að leiða krafta vísindasamfélagsins saman til að tryggja að háskólinn standist alþjóðlegan samanburð.
„Ég legg áherslu á að styrkja stoðir gæðakennslu og náms í deildum skólans og að auka tækifæri stúdenta til rannsókna, starfsnáms og þátttöku í skapandi og hagnýtum verkefnum,“ skrifar hún.
„Mín bjargfasta trú er sú að akademískt frelsi og samvinna þeirra sem mynda háskólasamfélagið sé lykillinn að árangri,“ skrifar hún enn fremur.
Jón Atli Benediktsson rektor hyggst ekki sækjast eftir embættinu áfram þegar skipunartíma hans lýkur í júlí.
Að minnsta kosti fjórir aðrir hafa boðið sig fram: Björn Þorsteinsson heimspekiprófessor, Ingibjörg Gunnarsdóttir aðstoðarrektor, Magnús Karl Magnússon lyfjafræðiprófessor og Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðiprófessor.