Lífið er yndislegt, syngur Inga

Inga Sæland virtist hin rólegasta á ríkisstjórnarfundi í gær, þrátt fyrir að endurgreiðslukrafa opinberra styrkja gæti stefnt Flokki fólksins í þrot og um hana gustaði vegna samskipta hennar við skólastjóra barnabarns hennar.

Þegar blaðamann bar að garði stóð Inga fyrir utan fundarherbergið og söng þjóðhátíðarlagið Lífið er yndislegt.

Inga var innt eftir því hverju þyrfti að breyta í samþykktum flokksins til þess að hann mætti skrá á stjórnmálasamtakaskrá.

„Við verðum fyrst og síðast að heita stjórnmálaflokkur eftir að nýju lögin tóku gildi.“

En samþykktir flokksins skilgreina hann sem stjórnmálasamtök nú þegar?

„Þú ert að segja mér fréttir,“ sagði Inga hissa. „Ég bara fer í þetta strax.“

Hverjir eru starfsmenn skrifstofunnar?

„Skrifstofustjórinn okkar og prókúruhafinn og gjaldkerinn okkar [Jónína Björk Óskarsdóttir] datt nú bara inn á þing. Svo er Baldvin Örn Ólafsson, sonur minn, hann hefur verið starfsmaður þarna um tíma.“

Nei, gjaldkerinn er ekki með prókúru. Af hverju ekki?

„Ég skil ekki spurninguna.“

Samkvæmt fyrirtækjaskrá hefur gjaldkeri flokksins ekki prókúru fyrir flokkinn.

„Framkvæmdastjórinn [Sigurjón Arnórsson, aðstoðarmaður Ingu] og hún vinna náið saman. Hún hefur tekið á móti öllum reikningum og þau í sameiningu farið yfir það og síðan hefur þetta verið sett inn í eitthvert kerfi og farið alveg lögum samkvæmt til Ríkisendurskoðunar og fengið alveg frábæra meðferð þar.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert