Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að frekari ákvarðanir og afleiðingar styrkjamálsins verði að bíða niðurstöðu athugunar Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra.
„Það er alveg ljóst að það hefur orðið misbrestur á framkvæmd laganna, misbrestur sem varðar fimm stjórnmálaflokka, á því hyggst ný ríkisstjórn taka,“ segir Kristrún í samtali við Morgunblaðið.
„Það þarf að taka á málinu inni í fjármálaráðuneytinu og þar er málið í lagalegri skoðun og það styttist í að niðurstaða liggi fyrir.“
Hún vill lítið segja um hvort unnt sé að leggja það allt að jöfnu, þegar grannt sé skoðað hafi allir stjórnmálaflokkar fengið einhverjar aðfinnslur sem brugðist hafi verið skjótt við, en Flokkur fólksins og Vinstri grænir hins vegar ekki uppfyllt lagaskilyrði til opinberra styrkja árum saman.
„Við viljum auðvitað að stjórnmálaflokkar fari að lögum. Þess vegna er verið að skoða málið. Það er ljóst að það hefur orðið misbrestur, við viljum bæta úr því,“ segir Kristrún og bætir við að það hafi síðasta ríkisstjórn ekki gert.
En felst ekki pólitískur vandi í því fyrir ríkisstjórnina að Inga Sæland hefur viðurkennt að hún tók við peningunum gegn betri vitund, ár eftir ár, og neitar að skila þeim?
„Eins og staðan er þýðir ekkert að spá fyrir um framtíðina varðandi endurgreiðslur, það er eitt af því sem mun koma út úr lagalegri skoðun fjármálaráðherra. Það er ekki mitt að segja hvort og hvernig endurgreiðslum verður háttað. Ég þekki ekki smáatriði málsins enda rekstur Flokks fólksins ekki á mínu borði.“
En þú ert forsætisráðherra og ráðuneyti þitt er á þínu borði.
„Það kemur á mitt borð þegar lagalegu skoðuninni er lokið. Við bara bíðum eftir henni.“
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag