Stefna á úrslitatilraun til að höggva á hnútinn

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að ekki megi bíða lengur með …
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að ekki megi bíða lengur með að gera úrslitatilraun. Morgunblaðið/Eggert

Ríkissáttasemjari gerir ráð fyrir að á morgun verði boðað til fundar í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Stefnt er að því að gera úrslitatilraun til að höggva á hnútinn í deilunni áður en verkfallsaðgerðir hefjast á ný á á mánudag. Ekki liggur þó fyrir hvenær fundurinn verður.

Aðspurður hvort það þýði að einhver árangur hafi náðst í samtölum á milli deiluaðila síðustu daga segir hann það ekki endilega vera svo. 

„Það þýðir að það þarf að minnsta kosti að draga saman einhvers konar niðurstöðu af þessu ferli,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.

„Það er þannig að það blasir við að það hefjist verkföll eftir helgina, þannig það þarf að gera einhverja úrslitatilraun til að höggva á þessa hnúta og það verður ekki beðið mikið lengur með það.“

Verkföll hefjast á mánudag að öllu óbreyttu

Líkt og fram hefur komið hefur lítill sem enginn framgangur orðið í viðræðunum frá því samkomulag um friðarskyldu var gert í lok nóvember og verkföllum frestað.

Deiluaðilar hafa ekki hist á form­leg­um samn­inga­fundi frá því á miðviku­dag­inn í síðustu viku. Þá var reynt til þraut­ar að finna grund­völl til frek­ara sam­tals, án ár­ang­urs.

Sá þá ríkissáttasemjari ekki tilefni til að boða til frekari funda, nema eitthvað gæfi tilefni til. Sam­töl hafa þó átt sér stað á milli deiluaðila og ein­hverj­ar þreif­ing­ar hafa verið í gangi.

Formaður samn­inga­nefnd­ar Sam­bands Íslenskra sveit­ar­fé­laga hef­ur sagt að það þurfi viðhorfs­breyt­ingu af hálfu kenn­ara til að samn­ing­ar ná­ist. Þeir séu fast­ir í launakröf­um sem ekki sé hægt að koma til móts við.

Formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands seg­ir kröfu um jöfn­un launa á milli markaða standa óhaggaða. Grund­vall­ar­atriði sé að staðið sé við sam­komu­lag frá ár­inu 2016. 

Að öllu óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir á mánudag fjór­tán leik­skól­um og sjö grunn­skól­um. Þá hef­ur Fé­lag fram­halds­skóla­kenn­ara gefið út að farið verði í at­kvæðagreiðslu um ótíma­bund­in verk­föll í nokkr­um fram­halds­skól­um strax í byrj­un fe­brú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert