Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hyggst leggja það fyrir borgarstjórn að meta kostnað við sviðsmyndir tengdar framtíð vöruhússins við Álfabakka.
Tillögunni er ætlað að tryggja faglegt og heildstætt mat á mögulegum lausnum varðandi stálgrindarhúsið.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á að framkvæmdir verði stöðvaðar tafarlaust á meðan kostnaðarmat og vinna við farsæla lausn fer fram.
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins flytur tillögu þess efnis á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn í næstu viku.
Í tillögunni, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, er lagt til að eftirtaldar sviðsmyndir verði metnar: Flutningur húsnæðisins á aðra hentuga lóð, sem ekki er í miðri íbúðabyggð, ásamt öllum tilheyrandi kostnaði, svo sem bótagreiðslum, byggingarréttargjöldum, flutnings- og lögfræðikostnaði; finna vöruhúsinu næst íbúðablokkinni annan stað; óbreytt ástand þar sem húsið stendur áfram á núverandi stað, með tilliti til málaferla og lögfræðikostnaðar tengds þeim, hugsanlegra bótagreiðslna og áhrifa á umhverfið og nágrenni; breytingar á húsnæðinu sem miða að því að lágmarka áhrif þess á umhverfið og lífsgæði íbúa í nágrenninu; aðrar sviðsmyndir sem unnt er að leggja fram til lausnar málinu.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag