Félagsfólk Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda í leikskólum í Skagafirði telur formann fræðslunefndar Skagafjarðar hafa brotið siðareglur kjörinna fulltrúa með því að taka þátt í hópmálsókn foreldra gegn Kennarasambandi Íslands, vegna útfærslu verkfallsaðgerða. Með því hafi hann valið sérhagsmuni fram yfir almannahagsmuni. Þá telur félagsfólk hann einnig hafa brotið traust sem byggt hafi verið upp síðastliðin ár.
Þetta kemur fram í opnu til sveitarstjóra og sveitarstjórnar Skagafjarðar sem birtist á fréttamiðlinum Feykir.is.
Meirihluti sveitarstjórnar Skagafjarðar segir í yfirlýsingu sem birt var á vef sveitarstjórnarinnar í dag að gagnrýnin sé tekin alvarlega. Á næsta fundi verði aflað álits á því hvort formaðurinn, Kristófer Már Maronsson, hafi með framgöngu sinni brotið gegn siðareglum kjörinn fulltrúa og hæfisreglum stjórnsýslulaga.
Sjálfur segir hann það ekki óeðlilegt að hann sem foreldri gæti hagsmuna barna sinna í málinu. Hann taki þátt í málsókninni sem foreldri en ekki formaður fræðslunefndar. Telji einhver hann hafa brotið siðareglur sé eðlilegt að það fari í sinn farveg og úr því verði skorið. Hann styður því tillögu sveitarstjórnarinnar heilshugar.
„Það er frumskylda mín að huga að börnunum mínum,“ segir Kristófer Már Maronsson, formaður fræðslunefndar Skagafjarðar og þriggja barna faðir, í samtali við mbl.is.
„Ef það á að draga mína persónu sem formanns fræðslunefndar inn í þetta þá starfar fræðslunefnd fyrir alla íbúa samfélagsins; börn, kennara og foreldra,“ segir hann jafnframt en ítrekar að hann sé ekki á þessari vegferð sem formaður fræðslunefndar.
Í opna bréfinu segir félagsfólk ekki hægt að lýsa með orðum reiðinni og sárindunum sem þau hafi upplifað þegar í ljós kom að Kristófer væri einn þeirra sem stefndu KÍ. Gjörðir hans hafi þegar haft þær afleiðingar að einn kennari á leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki hafi sagt upp störfum. Fleiri eru sagðir íhuga stöðu sína.
„Það verður lítið um faglegt leikskólastarf ef það verða engir kennarar eftir til að kenna börnunum. Mjög erfiðlega hefur gengið að manna leikskólana í Skagafirði. Ef fleiri uppsagnir koma í kjölfar ákvörðunar formanns fræðslunefndar þá myndu þær leiða til þess að leikskólarnir geta ekki haldið öllum deildum opnum með tilheyrandi afleiðingum,“ segir í bréfinu.
Kristófer segist ekki ætla í slag við kennara og tekur fram að hann sé ekki í gagnsókn. Hann sé bara trúr sínum málstað. Mikilvægt sé að skera úr um lögmæti verkfallsaðgerðanna sem aðeins hafi bitnað á fámennum hópi.
„Eins og ég hef margsagt áður, er þessi málsókn engan veginn árás á kennara eða yfirlýsing um að okkur þyki störf kennara ekki virðingarverð eða starfsemi leikskóla ekki mikilvæg. Það er ekkert slíkt falið í þessu. Við erum bara í réttarríki og erum að láta reyna á rétt barna okkar.“
Kristófer áttar sig ekki alveg á því hverjir hans sérhagsmunir eru í málinu og segist ekki hafa fengið neina útskýringu á því. Hvorki hann né börn hans græði neitt umfram aðra.
„Hverjir eru almannahagsmunir í þessu máli? Eru það almannahagsmunir að það sé farið að lögum í landinu eða eru það almannahagsmunir að við lítum framhjá lögum vegna góðs málsstaðar?” spyr hann.
„Ég styð áfram kjarabaráttu kennara og ég hef sagt það líka að það er áhyggjuefni að ekki fæst nægilegt menntað fólk í kennarastéttina. Að kennaramenntaðir kjósi að starfa annars staðar. Ég tel að kjörin séu hluti af því.“
Bent er á það í bréfinu að Kristófer hafi haft val um að láta aðra taka slaginn í þessu máli, en hann segir ekki alla hafa sömu tök á því að standa að málsókn.
„Það er þannig að það er ekki ókeypis að fara í mál og þetta er ekki af léttúð gert. Það er líka þannig að það eru fjölskyldur í samfélaginu sem hafa ekki borð fyrir báru til að fara í þennan slag. Það eru kannski helst þær fjölskyldur sem þurfa á því að halda að það sé skorið úr um þetta.“
Hann segist bera virðingu fyrir upplifun allra í málinu, en bendir á að þátttaka hans í málsókninni hafi ekkert með skoðun hans á menntakerfinu að gera eða fólkinu sem þar starfar. Hann vonar innilega að ekki komi til uppsagna af hálfu kennara vegna kjaradeilunnar
„Mér finnst alveg sjálfsagt ef einhver telur að ég hafi brotið siðareglur að það fari bara í sinn farveg og úr því verði skorið. Það er fullkomlega eðlilegt.“