Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Guðmann Ólafsson skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytinu.
Ákvörðun ráðherra var tekin í samræmi við mat ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda, líkt og kveðið er á um í lögum um Stjórnarráð Íslands.
Guðmann hóf störf sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu árið 2018 og hefur frá árinu 2024 verið staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála.
Í störfum sínum í heilbrigðisráðuneytinu hefur Guðmann tekið virkan þátt í gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga og komið að eftirliti með rekstri ráðuneytisins og fjármálum undirstofnana þess. Hefur hann einnig leitt stefnumótun, gerð og innleiðingu nýrra reiknilíkana á sviði sjúkrahúsþjónustu og átt sæti í verkefnisstjórn um kynjaða hagstjórn.
Áður starfaði hann í rúm fimm ár hjá Seðlabanka Íslands og fyrir þann tíma um sex ára skeið hjá Arion verðbréfavörslu. Hann er með MSc-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Buisness School og BS-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands.