Næsti samningafundur í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), og sveitarfélaga hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara á þriðjudag.
Síðasti fundur fór fram síðatliðinn þriðjudag og var þá ágætur gangur í viðræðunum að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara.
Þá var einnig fundað í kjaradeilu LSS og ríkisins, en ekki hefur verið boðað til nýs fundar í þeim viðræðum.
Ef samningar nást ekki fyrir 10. febrúar næstkomandi skella á verkföll slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem starfa hjá sveitarfélögunum.