Reykjanesbrautin opnuð að nýju

Frá Reykjanesbrautinni í morgun.
Frá Reykjanesbrautinni í morgun. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurnesjum

Reykjanesbrautin hefur verið opnuð á nýjan leik en henni var lokað milli Fitja og Grindavíkurvegar í áttina að höfuðborgarsvæðinu á níunda tímanum í morgun.

Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, kemur fram að búið sé að opna Reykjanesbrautina en hálka eða snjóþekja og skafrenningur er á brautinni og óvissa sögð ríkja um færðina.

Ófært er á Krýsuvíkurvegi og á Festarfjalli en snjóþekja og skafrenningur er víða á Reykjanesi. Vegirnir um Grindavíkurveg, Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði eru allir á svokölluðu óvissustigi og gætu því lokast með stuttum fyrirvara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert