„Við erum ekki að sjá neinar breytingar á mælum núna,“ segir Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurð hvort jarðskjálfta- eða aflögunarmælingar gefi til kynna að stutt sé í eldgos.
Ríkislögreglustjóri lýsti yfir hættustigi á Reykjanesskaga nú síðdegis, en slíkt hefur yfirleitt aðeins verið gert þegar vísbendingar er um að mjög stutt sé í kvikuhlaup eða eldgos á Sundhnúkagígaröðinni.
„Reynslan hefur sýnt okkur að skjálftar sem fyrirboði eldgoss hafa farið minnkandi með hverju gosinu. Í ljósi þess hvað það er slæm veðurspá um helgina ákvað ríkislögreglustjóri að færa upp á hættustig,“ segir Ingibjörg.
„Bara einfaldlega af því að skyggni verður takmarkað, færð getur spillt og það eru svo margir þættir sem þarf að huga að þegar kemur að almennu öryggi.“
„Þetta er bara forvörn fyrir helgina og allir eru á tánum. Við erum að nálgast þetta í tíma, það getur gerst hvað úr hverju en það getur líka gerst eftir tvær vikur. En af því að veðuraðstæður og ytri aðstæður eru svona krefjandi næstu daga var tekið þetta skref,“ segir Ingibjörg.
Slæm veðurskilyrði hafa áhrif á mælakerfi Veðurstofunnar og þegar hvasst er, og mikil ofankoma, verður mæling ekki jafn næm og við betri skilyrði. Segir Ingibjörg að þess vegna sé betra að hafa vaðið fyrir neðan sig.