Settist inn í bíl og hótaði ökumanni með hnífi

Atvikið átti sér stað í Hafnarfirði.
Atvikið átti sér stað í Hafnarfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan handtók í dag mann sem hótaði ökumanni með hnífi eftir að hafa ruðst inn í bíl hans og heimtað far.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Ökumaðurinn var að leggja bílnum sínum í Hafnarfirði þegar maðurinn sest inn og biður um far.

Þegar ökumaðurinn neitar honum dregur maðurinn upp hníf og hótar að stinga hann.

Ökumaðurinn fór þá út og hljóp frá bifreiðinni. 

Lögregla kom síðar á vettvang og handtók þann er ruðst hafði inn í bílinn og færði hann í fangaklefa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert