Skoða tengsl vinsælla lyfja við sjaldgæfan sjúkdóm

Lyfjaöryggisnefnd Lyfjastofnunar Evrópu metur nú hvort notkun semaglútíðlyfja auki áhættu …
Lyfjaöryggisnefnd Lyfjastofnunar Evrópu metur nú hvort notkun semaglútíðlyfja auki áhættu á sjaldgæfum augnsjúkdómi sem getur valdið blindu. AFP/Scott Olson

Lyfjaöryggisnefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) skoðar nú hvort orsakatengsl séu milli semaglútíðslyfja og sjaldgæfs augnsjúkdóms.

Öryggisnefndin (PRAC) kom saman nú í janúar á mánaðarlegum fundi sínum þar sem ákveðið var að ráðast í að meta tengslin.

Tvær nýlegar áhorfsrannsóknir urðu til þess að PRAC hefur nú tekið til við að meta hvort orsakatengsl gætu hugsanlega verið milli notkunar semaglútíðs og sjaldgæfs augnsjúkdóms.

Sjúkdómurinn sem um ræðir nefnist blóðþurrðarsjóntaugarkvilli án slagæðabólgu, NAION (e. non-arteritic anterior ischemic optic neuropathy), og lýsir sér með minnkuðu blóðflæði til sjóntaugarinnar sem getur þar með skemmt hana og orsakað blindu.

Ozempic, Rybelsus og Wegovy

Semaglútíð lyf eru notuð ýmist sem meðferð við sykursýki eða offitu; lyfin sem um ræðir eru Ozempic, Rybelsus og Wegovy.

Mikill fjöldi Íslendinga er á þessum lyfjum, eða yfir 17 þúsund manns, og hefur notkun þeirra hérlendis, sem og erlendis, aukist mikið á síðustu árum.

Í tilkynningu á vef Lyfjastofnunar Íslands segir að lyfjaöryggisnefndin muni nú meta hvort notkun lyfjanna auki áhættu á sjúkdómnum og afla til þess allra gagna sem tiltæk eru. Þar á meðal eru gögn úr klínískum rannsóknum, eftirliti með markaðssetningu og fræðigreinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert