Gular og appelsínugular viðvaranir verða í gildi í dag og morgun fyrir mestan hluta landsins.
Hvöss suðaustanátt verður fram eftir degi og vindstrengir við fjöll, til að mynda við Hafnarfjall. Snjókoma er á fjallvegum á vestanverðu landinu.
Mikil úrkoma og hláka getur valdið vatnavöxtum, krapaflóðum og skriðuhættu. Á það sérstaklega við á Austfjörðu, Suður - og Suðausturlandi.
Að sögn Veðurstofu Íslands dregur úr vindi og styttir upp eftir klukkan sex í kvöld.
Búast má áfram við hvassri suðaustanátt með hviðum yfir 35 m/s við fjöll eftir hádegi á morgun, til að mynda við Hafnarfjall og á Kjalarnesi, og víðar um landið annað kvöld, til dæmis undir Eyjafjöllum og á Öxnadalsheiði.
Þá verður áfram hvasst fram eftir degi á laugardag. Búast má við órólegu veðri alla helgina, með hvassviðri og mikilli úrkomu.
Möguleiki er á vatnavöxtum vegna úrkomu og hlýinda í veðri, þá er mikilvægt að vera búinn að hreinsa niðurföll og fráveituskurði.
Einnig er bent á að aðstæður á vegum geta verið erfiðar og ökumenn því hvattir til að fara varlega.
Veðurvefur mbl.is