Ýtti konu sem féll og varð fyrir bíl

Atvikið átti sér stað fyrir framan kaffihús í Reykjavík fyrir …
Atvikið átti sér stað fyrir framan kaffihús í Reykjavík fyrir þremur og hálfu ári. mbl.is

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt karlmann á fertugsaldri fyrir líkamsárás en frestað ákvörðun refsingar skilorðsbundið. Hann var hins vegar dæmdur til að greiða 600.000 kr. í miskabætur.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gaf út ákæru á hendur manninum í ágúst í fyrra. Þar var hann sakaður um líkamsárás með því að hafa fimmtudaginn 26. ágúst 2021 veist að konu með ofbeldi og ýtt henni svo hún féll í jörðina og varð fyrir bifreið. Þetta gerðist fyrir utan kaffihús í Reykjavík.

Fram kemur í ákærunni að konan hafi m.a. hlotið brot á vinstra bátsbeini og kramningaráverka á vinstra brjósti, vinstri öxl, vinstri upphandlegg, vinstri olnboga, framhandlegg og vinstri hendi.

Konan krafðist þess að maðurinn yrði dæmdur til að greiða henni eina milljón kr. í miskabætur.

Játaði sök og lýsti yfir iðrun

Fram kemur í dómi héraðsdóms, sem féll í gær, að maðurinn hafi játað sök. Tekið er fram að hann hafi ekki sakaferil sem hafi áhrif á refsingu og það er honum til málsbóta. Þá horfir það til refsimildunar að maðurinn hafi greiðlega gengist við broti sínu hjá lögreglu og fyrir dómi og lýst iðrun sinni.

Til refsiþyngingar horfir hins vegar að brotið beindist að mikilvægum verndarhagsmunum og afleiðingar þess voru talsverðar.

Í dómi héraðsdóms segir að við ákvörðun refsingar verði litið til þess að langt sé liðið frá atvikinu sem um ræðir eða nálægt þremur og hálfu ári. Tafir á meðferð málsins skýrist að einhverju leyti af sáttaumleitunum í málinu.

Vilji til sátta

Sækjandi, verjandi og lögmaður bótakrefjanda lýstu því fyrir dóminum að ástæða þess að sátt hefði ekki náðst í málinu væri sú að maðurinn hefði ekki getað greitt bætur með eingreiðslu og að ríkissjóður greiddi þolendum afbrota ekki bætur á grundvelli sátta hjá lögreglu. Vilji hefði hins vegar verið til sátta hjá öllum aðilum og samkomulag um fjárhæð bóta.

Því þótti rétt að fresta ákvörðun um refsingu yfir manninum og fellur hún niður haldi hann skilorð.

Auk þess að greiða konunni miskabætur, sem fyrr segir, þá var honum gert að greiða konunni 500.000 kr. í málskostnað og eina milljón í málsvarnarþóknun skipaðs verjenda síns.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert