#62. - Umdeild umsvif, langdregin busavígsla og óttalegt væl í þingmönnum

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Hanna Katrín Friðriks­son, nýr at­vinnu­vegaráðherra, sit­ur fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála. Marg­ir stór­ir mála­flokk­ar heyra und­ir ráðuneyti henn­ar, allt frá inn­lendri mat­væla­fram­leiðslu á sjó og landi til ferðaþjón­ustu og iðnaðar af öðru tagi.

    Í þætt­in­um er Hanna Katrín meðal ann­ars spurð út í af­stöðu sína og Viðreisn­ar til strand­veiða sem rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ur hef­ur gert að for­gangs­atriði í starfi sínu.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og Youtu­be, og er hún öll­um aðgengi­leg.

    Systkin fara yfir stöðuna

    Auk Hönnu Katrín­ar mæta systkin­in Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir, hlaðvarps­stjórn­andi þátt­ar­ins Komið gott, og Þórður Gunn­ars­son hag­fræðing­ur í settið til að fara yfir helstu frétt­ir líðandi viku. Und­an­farna daga hef­ur Krist­ín verið orðuð við for­manns­fram­boð í VR en fram­boðsfrest­ur renn­ur út í há­deg­inu á mánu­dag. Mun Krist­ín taka slag­inn?

    Titr­ing­ur á ólík­leg­ustu stöðum

    Viðtalið við Hönnu Katrínu var tekið upp í gær og hef­ur, áður en til birt­ing­ar kom, valdið nokkr­um úlfaþyt í her­búðum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Einkum þó hjá Sig­ur­jóni Þórðar­syni, þing­manni Flokks fólks­ins. Hann mun inn­an tíðar taka við for­mennsku í at­vinnu­vega­nefnd þings­ins.

    Gerði hann þátt­inn óbirta, að um­tals­efni á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi.

    Allt þetta og meira til í nýj­asta þætti Spurs­mála líkt og alla aðra föstu­daga.

    Fylg­ist með upp­lýs­andi og líf­legri sam­fé­lagsum­ræðu hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

    Systkinin Kristín Gunnarsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða málefni líðandi stundar …
    Systkin­in Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir og Þórður Gunn­ars­son ræða mál­efni líðandi stund­ar og frétt­ir vik­unn­ar. Hanna Katrín Friðriks­son, ráðherra at­vinnu­veg­anna sit­ur einnig fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála. Sam­sett mynd/​mbl.is/​María Matth­ías­dótt­ir
    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert