Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns VR en áður hafa Halla Gunnarsdóttir, Bjarni Þór Sigurðsson og Þorsteinn Skúli Sveinsson tilkynnt um framboð.
„Ég hef eiginlega alltaf haft mikinn áhuga á hag vinnandi fólks. Að við sem leggjum okkar af mörkum til samfélagsins með vinnuframlagi alla starfsævina, búum við öryggi, góð lífskjör og getum byggt börnunum okkar bjarta framtíð. Við getum með samstöðu og áræðni haft áhrif á samfélagið og hvernig gæðunum er skipt.Með þetta í huga hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns VR,“ segir í tilkynningu frá Flosa.
„Við þurfum öfluga og kraftmikla forystu til að leiða VR inn í framtíðina. VR er geysilega sterkt félag sem sameinar fólk í fjölbreyttum störfum og atvinnugreinum. Með afli sínu og samstöðu á félagið að vera leiðandi í að tryggja kjarabætur og réttindi með hagsmuni allra félagsmanna að leiðarljósi. VR á að hafa sterka rödd í samstarfi innan verkalýðshreyfingarinnar og veita stjórnvöldum þétt aðhald í efnahags- og velferðarmálum,“ segir hann jafnframt í tilkynningunni.
Flosi viðskiptafræðingur að mennt, og húsasmiður, og hefur verið félagsmaður í VR síðan 2006.
„Ég hef á þessum árum öðlast fjölbreytta reynslu á vinnumarkaði við störf mín hjá KPMG, Íslandsstofu, Starfsgreinasambandinu og Aton. Ég hef alla tíð verið virkur í félagsmálum m.a. sem bæjarfulltrúi í Kópavogi, í stjórn Landssímans og mörgu fleira og er núna formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks,“ segir í tilkynningunni.