Veður tekur að versna á landinu upp úr hádegi en spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu og asahláku.
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular og gular viðvaranir og taka fyrstu viðvaranir gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og á Suðurlandi klukkan 12. Klukkutíma síðar taka í gildi appelsínugular viðvaranir á Breiðafirði og á hálendinu og klukkan 17 á Suðausturlandi. Snemma í fyrramálið skellur svo á appelsínugul viðvörun á Ströndum og Norðurlandi vestra.
„Spáin er að ganga eftir. Þetta er suðaustan stormur sem byrjar fyrst vestalands upp úr hádegi. Þessu fylgir mikil rigning og það má búast við asahláku á Suðausturlandi og á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Björn Sævar Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Mikil úrkoma og hláka getur valdið vatnavöxtum, krapaflóðum og skriðuhættu og á það sérstaklega við á Austfjörðum, Suðurlandi og á Suðausturlandi. Snjór er á öllu landinu og getur hætta skapast á votum snjóflóðum og síðar krapaflóðum þegar hlánar skart.
Hann segir að það verði mjög hvasst á vestanverðu landinu í dag og um tíma í fyrramálið en vindinn fari að lægja þegar það fari að nálgast hádegi og það kólni í kjölfarið.
Björn segir að í kvöld geti hitinn náð allt að átta stigum en í fyrramálið geti hitinn komist í allt að tólf stig á Norðurlandi.
Von er á enn einni lægðinni á sunnudaginn og að sögn Björns Einars skellur lægðin á vestanverðu landinu á sunnudagskvöld með austan hvassviðri, hlýindum og rigningu sunnanlands. Hann segir að veðrið gangi niður um nóttina og á mánudaginn verði útsynningur með éljum og kólnandi veðri.
„Það eru sannkallaðar umhleypingar í veðrinu hjá okkur. Það hlýnar og frystir til skiptis,“ segir Björn.