Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina standa að fullu með tillögu ríkissáttasemjara um virðismatsvegferð í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga.
Blaðamaður ræddi við Kristrúnu Frostadóttur að loknum ríkisstjórnarfundi í dag og innti hana um álit ríkisstjórnarinnar á innahústillögu ríkissáttarsemjara í viðræðunum sem hafa verið strand um nokkurt skeið.
Samninganefndirnar hafa tíma til klukkan 13 á laugardag til að taka afstöðu til tillögunnar.
Tillagan felur meðal annars í sér að deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með virðismati og verkáætlun til 20 mánaða.
„Ég held að það skipti máli að kennarastéttin og almenningur heyri frá mér að ríkisstjórnin standi að fullu með þessari virðismatsvegferð en þetta er auðvitað lykilatriði ef það á að fara í þá vegferð að hækka laun og kjör kennara umfram aðrar stéttir,“ sagði Kristrún.
„Ég vona að þetta verði til þess að við sjáum lausn á þessu máli, þetta er auðvitað í höndum kennara núna að bregðast við þessari tillögu.“
Spurð hvort hún hefði áhyggjur af því að aðrar stéttir gætu gert sambærilegar kröfur og kennarar í kjölfar deilunnar segir Kristrún flesta meðvitaða um mikilvægi þess að viðhalda stöðugleika á vinnumarkaði og þess vegna skipti máli hvernig hlutirnir séu gerðir.
Umframhækkanir til ákveðinna stétta utan hins almenna markaðs þurfi því að vera í fastmótuðu kerfi, þ.e. virðismatinu sem sé viðurkennd vegferð um að hækka laun og kjör.
„Ég skil vel stöðu kennara. Ég átta mig alveg á því og ég hef séð skýrar vísbendingar um að þau séu með lægri laun en aðrir sérfræðingar á markaði en það þarf að afmarka þá vegferð. Stjórnvöld styðja þá vegferð og það þurfa kennarar að heyra frá okkur.
„Þess vegna er þessi virðismatsvegferð mikilvæg því hún veitir skýran ramma um hvers vegna það væri svigrúm til hækkana til að mynda hjá kennurum umfram aðra og við myndum þurfa að virða þann ramma.“
Ef til þess kemur að þessi tillaga sigli í strand og það verði ekkert úr slíkum sáttaumleitum kemur til greina að ríkið skerist í leikinn?
„Ég hef átt í samtölum við kennaraforystuna undanfarinn sólarhring og tekið stöðuna hjá þeim. Ég hef upplýst þau um það að ríkisstjórnin sé öll af vilja gerð til þess að styðja við kennarastéttina, börn og ungmenni þegar kemur að aðbúnaði.
Við erum með mál á dagskrá sem gætu styrkt aðstöðu kennara vel, þannig að við gætum stutt þau að því leytinu til. Síðan snýst þetta um rammann um virðismatið sem að við munum setja fjárheimildir í svo að sú virðismatsvegferð gangi hratt og örugglega fyrir sig.“