Töluvert um vatnsleka í heimahúsum

Biðlað er til fólks að huga að niðurföllum.
Biðlað er til fólks að huga að niðurföllum. mbl.is/Eyþór

Nóg hefur verið að gera hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu frá því seinni partinn í dag að sinna útköllum er varða vatnsleka. Öll útköllin hafa verið í heimahús. 

Þetta segir Jón Kristinn Valsson, innivarðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. 

Hann segir að útköll tengd vatnslekum séu komin yfir 15 en að ekkert stórt tjón hafi verið. 

Mikil rigning hefur verið í borginni í dag og er biðlað til fólks að huga að niðurföllum og passa að þau séu ekki stífluð til að koma í veg fyrir vatnsleka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert