Vegurinn um Súðavíkuhlíð opnaður á ný

Snjóflóð féll á veginn milli Ísafjfarðar og Súðavíkur skömmu eftir …
Snjóflóð féll á veginn milli Ísafjfarðar og Súðavíkur skömmu eftir miðnætti. Mynd úr safni. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson

Vegurinn á milli Ísafjarðar og Súðavíkur hefur verið opnaður á ný en honum var lokað í nótt eftir að snjóflóð féll á veginn skömmu eftir miðnætti.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum en þar segir að veðurspáin sé með þeim hætti að það gæti komið til lokunar með litlum fyrirvara.

Gular og appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi um allt land í dag frá kl. 12:00 og hvetur Vegagerðin alla þá sem hyggjast á langferðir næstu daga að fylgjast vel með færð á vegum og veðurspám þar sem akstursskilyrði verði erfið næstu daga vegna veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert