Hurðin rifnaði af

Óveðrið sem gekk yfir landið í gær og nótt reif …
Óveðrið sem gekk yfir landið í gær og nótt reif upp dyr Siglufjarðarkirkju upp úr miðnætti og braut þær illa. Bráðabirgðahurð var sett upp í nótt. mbl.is/Sigurður Ægisson

„Ég get ekki sagt að aðkoman hafi verið glæsileg. Mér fannst hún mjög sorgleg ef ég á að vera hreinskilin,“ segir Sandra Finnsdóttir, kirkjuvörður í Siglufjarðarkirkju.

Óveðrið sem gekk yfir landið í gær og nótt reif upp dyr Siglufjarðarkirkju upp úr miðnætti og braut þær illa. Hurðin í útidyrum kirkjunnar er tvöföld og gáfu báðir hlutar hennar sig.

Hurðin er jafngömul og kirkjan sem vígð var árið 1932. …
Hurðin er jafngömul og kirkjan sem vígð var árið 1932. Óvíst er hvort hægt verður að gera við hana. mbl.is/Sigurður Ægisson

Sandra segir í samtali við mbl.is að báðar hurðirnar hafi brotnað af lömunum. Björgunarsveitarmenn hafi svo skrúfað niður það sem eftir var af hurðunum og byggingafyrirtæki hafi komið og sett upp bráðabirgðahurð. 

„Það er eins og þær hafi bara rifnað af. Önnur hurðin lá í dyragættina en hin hurðin hafði fokið út og stöðvast við handrið sem er við aðgengi fatlaðra. Hún lá bara þar. Þær eru báðar illa farnar.“

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem þetta gerist. Síðast var það í mars árið 2023. „Við verðum að fara að gera einhverjar betri ráðstafanir. Þetta er ekki hægt. Við vonumst til að hægt verði að laga hurðirnar en það á eftir að koma í ljós,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert