Nýjar myndir sýna tjónið sem blasir við

Mikið tjón varð á Stöðvarf­irði í veðurofs­an­um í gær­kvöldi, nótt og í morg­un.

Þakplötur losnuðu á þökum fjölda húsa og tjón varð á smábátahöfninni. Sjá má hluta af þeim skemmdum sem urðu í veðrinu á meðfylgjandi myndum.

Íbúar á Skólabraut 12 hafa haft í nægu að snúast þar sem mikið tjón varð á þaki hússins sem í vatnsveðrinu orsakaði töluverðan leka.

Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson

Landgangur gaf sig

Land­gang­ur á smá­báta­höfn­inni gaf sig núna skömmu fyr­ir há­degi og svo­kallaður fing­ur sem bát­arn­ir liggja við brotnaði þegar bát­ur kastaðist upp á hann í einni hviðunni.

Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson

Í morgun stóð vindurinn beint inn fjörðinn og þvert á hann. Grjót og alls kyns drasl fauk þá bæði á hús og bíla.

Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson

Þak hvarf í heilu lagi

Þak­plöt­ur hafa fokið af hús­um og meðal ann­ars hvarf þak í heilu lagi af bíl­skúr. Rúður hafa einnig brotnað í stór­um stíl, bæði í húsum og bíl­um. Mörg tré eru far­in einnig.

Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson

Úrkoma og asahláka

Mikill vatnselgur fylgdi óveðrinu og ummerki um það mátti sjá víða um bæinn. Úrkoman var talsverð og þá gerði asahláku.

Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
Ljósmynd/Guðgeir Fannar Margeirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert