„Lyftistöng fyrir allt Norðurland“

Undirbúningur að framkvæmdum Ektabaða ehf. getur nú hafist eftir að …
Undirbúningur að framkvæmdum Ektabaða ehf. getur nú hafist eftir að samningur var undirritaður í vikunni um uppbyggingu á svæðinu.

„Við skrifuðum undir viljayfirlýsingu um verkefnið á síðasta ári en vorum að klára samning um svæðið núna í vikunni og nú getum við farið að byrja skipulagsvinnuna og hönnun á svæðinu,“ segir Jóhann Guðni Reynisson, framkvæmdastjóri Blue Vacations og einn af eigendum Ektabaða ehf.

Samningur Ektabaða ehf. við Dalvíkurbyggð verður til 99 ára og var hann undirritaður á Baccalau bar Elvars Reykjalín, sem er framkvæmdastjóri Ektafisks og frumkvöðull í ferðamennsku á Hauganesi.

Framkvæmdir í áföngum

„Núna getum við farið að undirbúa framkvæmdir fyrir alvöru, en við fengum 10 hektara lands upp af fjörunni við Hauganes í Eyjafirði og þar er áformuð ferðatengd starfsemi á vegum Ektabaða ehf. þar sem verða m.a. hótel, bústaðir og böð.“

Næsta skref verður að breyta aðalskipulagi og gera deiliskipulag og hanna mannvirkin samhliða því í áföngum að sögn Jóhanns Guðna. „Við reiknum með að í fyrstu atrennu munum við byrja á böðunum og einhverjum bústöðum og svo verður uppbygging á næstu árum miðað við þær hugmyndir,“ segir hann og bætir við að umsjón með hönnunarvinnunni sé á borði Nordic Office of Architecture, sem Ektaböð unnu með að tillögunni fyrir svæðið sem send var til sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar í fyrra.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert